Dómari í ærumeiðingarmáli gegn Margréti Friðriksdóttur, vegna ummæla hennar um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir að Margrét hafi veist með beinskeyttum og óvægnum hætti að persónu og einkalífi Barböru og vegið að æru hennar og mannorði, ýmist með röngum staðhæfingum eða með því að flétta saman gildisdómum og röngum staðhæfingum, án þess að sú aðför verði réttlætt með sönnunargögnum eða sýnt hafi verið fram á að skrif Margrétar um Barböru á Facebok hafi átt nauðsynlegt erindi við almenning eða verið liður þjóðfélagslegri umræðu.
Jónas Jóhannsson kvað upp dóm í málinu við Héraðsdóm Reykjaness í morgun og sakfelldi þar Margréti fyrir ærumeiðingar. Dæmdi hann hana til greiðslu 200 þúsund króna sektar og verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna þarf Margrét að sæta fangelsi í 14 daga. Ennfremur er Margrét dæmd til að greiða málskostnað upp á rúmlega þrjár milljónir króna.
Sjá nánar um málið og forsögu þess:
Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara
Í niðurstöðu sinni bendir Jónas á að Margrét hafi í skrifum sínum sakað Barböru um að hafa í dómi sem Barbara kvað upp yfir Margréti fyrir hótanir í gegn Semu Erlu Serdar „falsað vitnisburði sem komu skýrt fram í dómsal“ og með dóminum „augljóslega verið að misnota dómsvaldið til að hefna sín á borgurum.“
Jónas rifjar upp að Margrét hafi við aðalmeðferð malsins gengist við því að Barbara hafi ekki falsað framburð tiltekins vitnis og hún í sínum dómi greint réttilega frá því sem viðkomandi vitni sagði fyrir dómi. Þar með sé sú fullyrðing Margrétar augljóslega röng að Barbara hafi falsað framburð vitna fyrir dómi og sömuleiðis sú fullhyrðing að hún hafi misnotað dómsvald til að hefna sín á borgurum.
Jónas segir að Margrét hafi haft öll tækifæri til að gagnrýna dóm Barböru yfir sér á málefnalegan hátt en þess í stað hefði hún vegið að æru hennar með rætnum og röngum fullyrðingum.
Hefði þurft að sænga með 12 af 19
Jónas segir ennfremur að staðhæfing Margrétar þess efnis að Barbara væri lauslát mella „sem seldi blíðu sína til að komast í stöðu dómara“ væri augljóslega röng enda byggði hún á fullyrðingum um meint ástarsamband Barböru við annan dómara árið 2017 en Barbara hafi verið skipuð héraðsdómari árið 2013.
Fyrir dómi kvaðst Margrét hafa átt við að Barbara hafi selt blíðu sína til að verða varadómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur. Segir Jónas að ef byggja ætti á þeirri skýringu verði að ætla að Barbara hafi selt blíðu sína til 12 af 19 samdómendum sínum til að fá atkvæði þeirra við kosningu í stöðu varadómstjóra. Staðhæfingin sé röng eða alls ósönnuð og breyti engu í því sambandi hvort Barbara hafi átt í ástarsambandi við annan dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir að hún varð héraðsdómari.
Nokkuð ljóst þykir að dóminum verður áfrýjað til Landsréttar ef marka má fullyrðingar Margrétar fyrr í dag. Sjá nánar: