Laugardaginn 18. júlí verður Dagur íslenska fjárhundsins haldinn hátíðlegur í ellefta sinn á Íslandi. Eigendur íslenskra fjárhunda munu að venju koma saman í stærri og smærri hópum og njóta dagsins með ferfættum vinum sínum.
Sú hefð hefur skapast að Árbæjarsafn veitir völdum íslenskum fjárhundum undanþágu til að heimsækja safnið og gefst þá gestum safnsins kostur á að kynnast tegundinni. Dagskráin á Árbæjarsafni verður í senn formleg og óformleg en hún hefst klukkan 13:00 og lýkur klukkan 16:00.
Gestir og gangandi geta heilsað upp á hunda og eigendur sem verða á rölti um safnið en auk þess verða sýndar æfingar sem reyna á skynfæri hundsins og vinnugleði. Dýralæknir verður á safninu sem mun meðal annars sýna hvernig heilsufarsskoðun fer fram og svara spurningum. Lesnar verða sögur úr sveitinni sem tengjast íslenska fjárhundinum og enn fremur verða á svæðinu hundar sem þjálfaðir hafa verið til að hlusta á börn lesa upphátt.
Einnig verður dagskrá á netinu til að gefa fjölmörgum erlendum unnendum tegundarinnar kost á því að koma að því að gera daginn fræðandi og skemmtilegan. Dagskránni verður streymt á Facebook-síðunni Dagur íslenska fjárhundsins.
Í Skagafirði verður dagurinn haldinn hátíðlegur í samstarfi við Byggðasafn Skagfirðinga. Í tilefni dagsins verður frítt á safnið í Glaumbæ fyrir eigendur íslenskra fjárhunda sem koma með hundana. Einnig verður eigendum og hundum þeirra boðið heim að bænum Lýtingsstöðum í Skagafirði til að hittast og spjalla, skoða sögusetrið og torfhúsin á staðnum. Þá verður einnig frítt inn fyrir alla á Sögusetur íslenska fjárhundsins í tilefni dagsins.