Þingmenn á danska þinginu segja að danska ríkisútvarpið og systurstöð þess TV2 íþyngi heimilum landsins með útgáfu safnspila yfir jólahátíðina. Spilin, sem eru beintengd jóladagatali útvarpsins, verða fáanleg í völdum verslunum á aðventunni.
Jóladagatal danska ríkisútvarpsins hefur skemmt börnum á aðventunni áratugum saman. Dagatöl af þessum toga hafa gjarnan verið sýnd á RÚV.
Börn munu, að óbreyttu, geta safnað spilunum eftir því sem dagatalinu vindur fram. Þetta segja þingmenn að skapi óþarfa stress fyrir foreldra og forráðamenn yfir jólahátíðina – hátíð sem nú þegar litast af miklu stressi.
„Ég held að fjöldi barna verði spenntur að safna spilunum. Þess vegna skil ég vel hvers vegna DR telur að þetta sé góð leið til þess að ná til fleiri barna,“ segir Marlene Harpsøe, talsmaður Danmerkurdemókratanna í málefnum barna.
„Ég á sjálf börn og skil því vel hvernig þetta setur þrýsting á foreldra,“ bætti hún við í danska þinginu í morgun.
Auglýsingadeild danska ríkisútvarpsins segir að spilin eigi að vekja umræðu meðal barna og foreldra um jólahátíðina og jóladagatalið fjarri sjónvarpsskjám og öðrum snjalltækjum.
Spilin verða fáanleg í verslunum sem tengjast Salling-samsteypunni og eru í viðskiptum við hana. Vörur frá Salling voru nýverið kynntar til leiks hér á landi.
Aðrir þingmenn segja að útgáfa safnspilana, sem vel að merkja er ríkt fordæmi fyrir í Danmörku, einmitt í tengslum við jóladagatöl í sjónvarpi, geti skapað meting milli barna og samviskubit og áhyggjur meðal foreldra.
Enn aðrir segja rangt að ríkisstofnun eins og DR standi í slíkri útgáfu og segja nóg að einkaaðilar geri það.
DR segir í umfjöllun um málið að Mette Abildgaard, þingmaður íhaldsmanna, hafi hrist hausinn í þinginu í dag og sagt:
„Þegar ég heyrði af þessu hugsaði ég: Æ, nei, ekki meira af þessu! Sem móðir veit ég allt um hversu mikinn sess í lífi barna okkar svona safnspil geta skipað.“
„Mér finnst DR eiga að eftirláta öðrum svona útgáfu. Aðrir aðilar gera það – og það er í góðu lagi. DR ætti frekar að einbeita sér að almannaþjónustuhlutverki sínu.“