Kanadastjórn hyggst kaupa flota eftirlitsflugvéla og -kerfi af sænska hergagnaframleiðandanum SAAB fremur en bandarískar Boeing-þotur. Forsætisráðherrann Mark Carney greindi frá þessu í gær og sagði GlobalEye-eftirlitskerfið sænska verða lykilatriði við eftirlit og varnir flughers Kanada á norðurslóðum.
GlobalEye er eitt fullkomnasta ratsjár- og eftirlitskerfi fyrir flugvélar sem völ er á. Það getur greint hundruð skotmarka af öllum stærðum samtímis í allt að 650 kílómetra fjarlægð, á landi, í lofti og á legi.
Carney hefur áður sagst vilja draga úr þörf Kanada fyrir samstarf við bandarísk hermálayfirvöld. Í yfirlýsingu frá SAAB segir að ákvæði fyrirhugaðs samnings geri ráð fyrir að fyrirtækið leggi fé til rannsókna og þróunar í Kanada. Carney tilgreindi hvorki hve margar flugvélar og eftirlitskerfi verði keypt né hvert verðið sé.