Lestarstjórarnir á morgun verða Svali og Ívar Guðmunds sem munu sjá til þess að allir farþegar skemmti sér konunglega. Að venju fá þeir skemmtilega gesti í heimsókn en Bylgjan verður í beinni milli kl. 12 og 16.
Bylgjan býður upp á skemmtilegan sumarvarning í Lukkuhjólinu og gjafabréf frá N1 verða í boði, frískandi 7up Pink drykkir, Kitkat og áskrift að Sýn+. Talaria raf-mótorhjól og IKAMPER tjöld eru til sýnis og Samgöngustofa mun fjalla um umferðaröryggi.
Næstu stopp Bylgulestarinnar:
- 27. júní Í Hjarta Hafnarfjarðar
- 3. júlí Polla og N1 mót á Akureyri
- 11. júlí Kótelettan á Selfossi
- 18. júlí Götubitahátíðin í Hljómskálagarðinum
- 25. júlí Bylgjulestar útilega á Flúðum