Fresta þurfti ýmsum framkvæmdum í vor í Norðurþingi vegna óvissu um fjárhagsstöðu bæjarsins eftir fráhvarf PCC frá Bakka. Þá settu málaferli gegn hvalaskoðunarfyrirtækjum fjárhag sveitarfélagsins í uppnám.
Hjálmar Bogi Hafliðason, þáverandi oddviti sveitarstjórnar, sagði að skynsamlegast væri að fresta ákveðnum framkvæmdum til að binda ekki hendur nýrrar sveitarstjórnar.
Ný sveitarstjórn hefur hafið störf og sett ýmislegt á framkvæmdaáætlun. Meðal annars nýtt laugarkar í Lundi í Öxafirði.
„Við gerum ráð fyrir því að gamla laugin verði rifin og það verði reist þarna nýtt laugarkar. Og búnaðurinn sem tilheyrir lauginni og kerfið í kringum hana, það verði byggt sérstakt aðstöðuhús á lóð laugarinnar fyrir það. Þannig við erum líka að gera úrbætur á því,“ segir Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti sveitarstjórnar Norðurþings.
Sveitarfélagið vel í stakk búið
Sundkennsla barna í Öxarfjarðarskóla í haust verður snörp, í gömlu lauginni, til þess að framkvæmdir geti hafist sem fyrst. Hún segir sveitarfélagið ráða vel við þær framkvæmdir sem eru á dagskrá.
„Við vorum með svolítið mikið undir í framkvæmdum sem við ætluðum okkur að fara í á þessu ári. Þegar tekjuskerðingin kemur þá ákváðum við frekar í staðin fyrir að fara í aukna lántöku og slíkar breytingar á fjárhagsáætlun að taka í bremsuna, handbremsuna. Rekstrarstaðan er ágæt hjá sveitarfélaginu heilt yfir og við munum ráða vel við þessar framkvæmdir eða fjárfestingar á næsta ári.“