„Ég tel að Verkamannaflokkurinn hafi valið Andy Burnham sem næsta forsætisráðherra því hann er talinn hafa einhverja eiginleika sem tengja betur við almenna kjósendur,“ segir Alastair Campbell, stjórnmálaskýrandi og annar af tveimur stjórnendum hlaðvarpsins The Rest is Politics, sem nýtur fádæma vinsælda í Bretlandi og víðar.
Campbell var staddur hér á landi í dag til að taka upp viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra fyrir sérstaka útgáfu hlaðvarpsins, þar sem hann og félagi hans, Rory Stewart, ræða við leiðtoga í ýmsum ríkjum.
„Burnham er mjög áhugaverður maður; ég hef þekkt hann í langan tíma og hann hefur brennandi áhuga á stjórnmálum og trúir því að það sé hægt að beita þeim til að hjálpa fólki. Hann er búinn að vera borgarstjóri og ráðherra, en ég held að hann geri sér fulla grein fyrir því að starfið sem hann er núna að taka að sér er erfiðara en nokkuð sem hann hefur gert áður – við erum þjóð sem stendur frammi fyrir stórum áskorunum núna,“ segir Campbell.
Þarf að leiða Verkamannaflokkinn til sigurs
Keir Starmer tók við sem forsætisráðherra fyrir rétt rúmum tveimur árum, eftir stórsigur Verkamannaflokksins í þingkosningunum 4. júlí 2024. Vinsældir hans hafa hins vegar farið ört minnkandi og umtalið um mögulegan arftaka hans hefur verið hávært undanfarna mánuði.
„Það er auðvitað ótrúlegt að hafa unnið þvílíkan kosningasigur með þriggja stafa meirihluta [á breska þinginu] yfir í það að hverfa úr embætti eftir tvö ár,“ segir Campbell um Starmer.
„En ég held að ástæðan fyrir því að Verkamannaflokkurinn ákvað að skipta um leiðtoga sé að það var vaxandi tilfinning, sérstaklega í kjölfar aukakosninganna sem Burnham vann, að við þyrftum leiðtoga sem gæti hrundið ógninni frá fjarhægri flokkunum. Það er verkefnið sem blasir við Burnham; hann þarf semsagt ekki aðeins að standa sig vel í embætti forsætisráðherra – hann verður að sigra í næstu kosningum, því ég held að ef Verkamannaflokkurinn sigrar ekki, þá verði hinn valkosturinn frekar ógnvekjandi.“
Viðtalið í heild sinni á ensku má spila hér fyrir neðan.