Búlgaría sigraði Eurovision-söngvakeppnina í kvöld með danslaginu Bangaranga. Sigurinn þótti nokkuð óvæntur þar sem Finnum hafði verið spáð sigri í veðbönkunum.
Stigagjöfin var nokkuð spennandi og hafði Búlgaría sigurinn á lokametrunum og sigraði þar með Ísrael sem hafnaði í öðru sæti en Rúmenía hlaut þriðja sætið. Þetta er fyrsti sigur Búlgaríu í keppninni.
Ísland tók ekki þátt í ár og það gerðu Spánn, Írland, Holland og Slóvenía ekki heldur sökum andstöðu við þátttöku Ísraels.
Sigur Búlgaríu hefur þó líklega ekki komið annáluðum Eurovision-aðdáendum á óvart enda er lagið grípandi og sviðsetningin var frábær. Taki Ísland þátt á næsta ári þá liggur nú fyrir að keppnin fer fram í Búlgaríu.