Bubbi Morthens fyllti Laugardalshöll í tvígang um helgina auk þess sem margir fylgdust með að heiman í streymi. Litlu mátti þó muna að ekkert yrði af 70 ára afmælistónleikum hans.
Rúmum tveimur vikum fyrir tónleikana sleit Bubbi liðband á æfingu. Flestir hefðu lagst upp í rúm og grátið í koddann en Bubbi var ekki á þeim buxunum. Með hjálp sjúkraþjálfarans Mario frá Króatíu náði hann undraverðum bata og renndi sér í gegnum þriggja tíma prógramm í Höllinni eins og ekkert hefði í skorist.
Bubbi segir að ógæfan hafi dunið yfir 20. maí. Þá var hann á daglegri æfingu sinni og í það skiptið var hann að hlaupa upp og niður steintröppur.
„Þarna tekur maður eins hraðan sprett og maður getur og ég missteig mig svona herfilega. Og þá meina ég herfilega! Ég fann strax að þetta væri alvarlegt, þegar þú meiðir þig svona illa þá veistu það.“
Læknarnir fundu gamalt fótbrot
Hann segir að fóturinn hafi fljótt dofnað og byrjað að bólgna.
„En ég ákvað strax að byrja að stíga í löppina. Ef þú ert fótbrotinn þá geturðu það ekki, það er alveg sérstök tegund af verk. Ég vissi samt að þetta væri slæmt og morguninn eftir fór ég í myndatöku. Þar kom í ljós að þetta voru alveg fullar hendur af vitleysu.“
Til að flækja málin fundu læknarnir gamalt fótbrot. Bubbi segir að hann hafi í fyrstu ekkert kannast við brotið en svo mundi hann að það væri frá þeim tíma er hann tók upp myndband á Eskifirði í kringum 1988.
„Ég fór á rjúpu og hrapaði niður fjall á harðfenni og lenti á grjóti. Ég var að drepast í löppinni í margar vikur en lét það bara yfir mig ganga.“
Læknarnir sáu svo að brotið var gamalt og að Bubbi hafði ekki brotið bein að þessu sinni. „Þeir sögðu hins vegar að ég væri að öllum líkindum búinn að slíta liðböndin.“
Skagamaður fenginn til að lækna KR-ing
Nú voru góð ráð dýr en það var Ísólfur Haraldsson, umboðsmaður Bubba, sem stakk upp á því að Bubbi færi upp á Skaga. Ísólfur er af mikilli knattspyrnufjölskyldu á Akranesi og þekkti til verka sjúkraþjálfarans Mario Majic hjá ÍA.
Sjálfsagt hefur það ekki verið auðvelt fyrir KR-inginn Bubba að leita á náðir gömlu erkifjendanna en hann lét sig hafa það enda mikið í húfi.
„Mario fékk strax ljósmynd og sá hvað þetta var bólgið. Þegar ég kom svo til hans var fóturinn orðinn miklu verri. Allt var blátt og rautt og gríðarlega bólgið. Hann sagði: „Þetta eru alvarleg meiðsli. Ég hef séð það verra og ég hef séð það betra. Trúir þú því að þú getir farið á svið og haldið tónleika eftir rúmar tvær vikur?“
Ég sagði já og þá sagði hann að við gætum farið að vinna. Ég er búinn að vera hjá honum daglega síðan þetta gerðist og í vikunni var tekið myndband af mér þar sem ég sippaði 200 sinnum. Hann er búinn að keyra mig í gegnum prógramm eins og ég væri atvinnuíþróttamaður og þyrfti að komast inn á völlinn sem fyrst.
Það virkaði, því á æfingum í Höllinni í vikunni hefði enginn tekið eftir neinu. Það sem hann hefur gert er með ólíkindum.”
Hefur verið svakalega kvalinn
Gestir á tónleikunum um helgina geta vottað að það var ekki að sjá að þar stæði stórslasaður maður. Bubbi viðurkennir þó að þetta hafi ekki verið auðvelt.
„Ég er búinn að vera svakalega kvalinn allan þennan tíma. En árangurinn er framar öllum vonum og við vorum í raun töluvert á undan þeirri áætlun sem við lögðum upp með. Ég er í raun orðlaus yfir hvernig Mario vinnur. Ég er fagmaður í mínu en ég hef aldrei séð svona hluti gerast,“ segir Bubbi, sem játar því að hraða endurhæfingarinnar megi að hluta til þakka því að hann var í afar góðu líkamlegu formi.
„Það trúði því enginn að þetta myndi ganga upp nema ég og Super-Mario. Hjá mér var enginn efi og þar sést hve máttur hugans er mikill. Maður þarf að hafa aga og vilja til að vinna sig í gegnum sársaukann og trúa því allan tímann hvað maður ætlar að gera.“
Hinn króatíski Mario á miklar þakkir skildar segir Bubbi og viðurkennir fúslega að án hans hjálpar er óvíst að tónleikarnir hefðu orðið að veruleika. „Ég dreg ekki úr mínum styrk og hugarfari en án hans sérþekkingar og núll meðvirkni hefði þetta ekki gengið eftir.“
Skipuleggjendur tónleikanna stungu upp á því við Bubba að dagskráin yrði stytt til að auðveldara væri að klára dæmið. Því tók hann fálega og niðurstaðan varð reyndar svo að tveimur lögum var bætt við upphaflegt plan.
Yrði að skila topp frammistöðu
„Þeir vildu hlífa mér. Ég hugsaði bara með mér að fólk er búið að borga stóran pening og er með væntingar fyrir tónleikana og það yrði að skila því topp frammistöðu.“
Bubbi er að endingu spurður hvað taki við nú þegar tónleikarnir eru afstaðnir. Aðdragandinn var langur og undirbúningur mikill, svo ekki sé minnst á meiðslin sem flæktu málið.
„Ég ætla að taka mér langt frí frá tónlistinni og ég ætla að fara að veiða. Ég þarf að vísu að gera það á spelkum enda get ég ekki verið að vaða út í án þess að vera með réttan stuðning.“


