Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum slökkviliðsins. Annað útkallanna á dælubílana var afturkallað þar sem búið var að leysa málið áður en slökkviliðið mætti á svæðið.
Í hinu málinu voru allir dælubílar kallaðir út vegna elds í húsnæði í Hafnarfirði. Þegar komið var á staðinn reyndist vera eldur í potti sem reykkafarar voru fljótir að slökkva og við tók reykræsting.
Í færslu á samfélagsmiðlum bakarísins Brikk kemur fram að bruninn hafi verið í eldhúsi þeirra við Norðurbakka í Hafnarfirði.
„Brikk fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki á Norðurbakkanum í kvöld. Í ljósi aðstæðna verður Brikk á Norðurbakka því miður lokað í óákveðinn tíma. Við tökum auðvitað vel á móti ykkur í öllum öðrum útibúum okkar,“ segir í færslunni.