Bresk hjón sem sitja í fangelsi í Íran hafa tapað áfrýjunarmáli sínu vegna tíu ára fangelsisdóms fyrir njósnir.
Lindsay Foreman og eiginmaður hennar Craig Foreman voru handtekin í Íran í byrjun árs 2025 er þau voru í hringferð um heiminn á mótorhjóli.
Hjónin voru í kjölfarið dæmd í tíu ára fangelsi fyrir njósnir. Þau hafa ávallt neitað sök.
Áfrýjun hafnað
„Nú hefur komið í ljós að áfrýjun þeirra gegn tíu ára dómi fyrir njósnir hefur verið hafnað,“ sagði sonur hjónanna, Joe Bennett, í yfirlýsingu.
Hann sagði að hjónunum hefði ekki verið leyft að vera viðstödd eigin áfrýjunarfund og að þau hefðu verið beðin um að undirrita skjöl á persnesku.
Málið sé nú í höndum Hæstaréttar en ferlið og tímalínan séu illskiljanleg fyrir utanaðkomandi. Þá njóti hjónin ekki lengur lögmanns skipaðs af dómstólum.
Fjölskylda hjónanna hefur hvatt bresk stjórnvöld til að gera meira til að hjálpa þeim og segir talsmaður utanríkisráðuneytisins í Bretlandi það vera áframhaldandi verkefni ráðuneytisins að tryggja að hjónin komist heilu og höldnu aftur til Bretlands.
Bæði í hungurverkfalli
Hjónin hafa bæði hafið hungurverkfall. Craig er nú á sínum 25. degi og Lindsay á sínum 16. degi.
Hjónin ferðuðust til Íran eftir að hafa hunsað viðvaranir frá vinum, fjölskyldu og breska utanríkisráðuneytinu, sem ráðleggur gegn öllum ferðum til Íran.
Hjónin eru aðeins þau nýjustu af fjölmörgum Vesturlandabúum sem Íran hefur haldið föngnum frá íslömsku byltingunni 1979, en stjórnvöld í Teheran eru sökuð um svokallaðan „gíslatökuerindrekstur“ til að knýja fram tilslakanir frá andstæðingum sínum í Evrópu og Bandaríkjunum.