Vegfarendum í miðborg Chicago brá heldur betur í brún þegar þeir sáu logandi kross án þess að nokkur væri viðstaddur. Atvikið vakti mikla athygli í Bandaríkjunum í síðustu viku og var rannsakað sem mögulegur hatursglæpur.
Brennandi krossar hafa í áratugi verið eitt þekktasta tákn Ku Klux Klan (KKK) og kynþáttahaturs í Bandaríkjunum og því var atvikið strax túlkað í því samhengi af bæði yfirvöldum og fjölmiðlum.
Brandon Johnson, borgarstjóri Chicago, fordæmdi verknaðinn harðlega og sagði brennandi kross vera tákn illsku og haturs sem ætti aldrei að sjást í borginni. Lögreglan í Chicago og alríkislögreglan FBI hófu sameiginlega rannsókn og á endanum voru birtar myndir úr eftirlitsmyndavélum af óþekktum manni sem grunaður var um verknaðinn. Fjölmiðlar fjölluðu á þessum tímapunkti um málið sem glæp tengdan kynþáttahatri og sem dæmi um uppgang öfgamanna og bentu á söguleg tengsl KKK við krossabrennur og ógnir gegn svörtum Bandaríkjamönnum.

Steig ekki fram fyrr en myndir voru birtar
Það var ekki fyrr en eftir að lögreglan hafði birt myndirnar af hinum grunaða og lýst eftir honum sem hinn 21 árs Merlin Lu hafði samband við NBC Chicago.
Í viðtalinu viðurkenndi Lu að hafa brennt krossinn en sagði jafnframt að verknaðurinn hefði verið ætlaður sem mótmæli gegn Donald Trump en ekki sem kynþáttahatur. Fram að þeim tíma hafði hann ekki komið fram opinberlega til að leiðrétta þá umfjöllun sem hafði ríkt um málið, þar sem það var rannsakað sem mögulegur hatursglæpur og tengt við Ku Klux Klan og það var ekki fyrr en myndir af honum voru birtar sem hann ákvað að útskýra ástæðuna fyrir verknaðinum.
Lu sagðist meðal annars hafa sett rauða húfu á krossinn til að tákna MAGA hreyfinguna og hélt því fram að tilgangurinn hefði verið pólitískur en ekki rasískur.
Lögreglan handtók Lu síðar og hefur hann verið ákærður meðal annars fyrir hatursglæp, íkveikju og ólögmæta krossbrennu með það að markmiði að ógna öðrum.
