Brotist var inn í Efstaleitisapótek í Reykjavík rétt fyrir klukkan níu í gærkvöld. Innbrotsþjófurinn komst undan á bíl. Þjófurinn ók, að sögn lögreglu, hættulega eftir akbrautum og göngustígum í Fossvogi og reyndi svo að komast undan á fæti. Hann var handtekinn skömmu síðar og vistaður í fangaklefa.
Innbrotsþjófurinn virðist hafa brotist inn um hurð apóteksins, sem er úr gleri, og búið er að setja tréplanka þar fyrir. Apótekarinn greindi frá innbrotinu á Facebook-síðu fyrirtækisins, sagði það brjóta hjartað í litla kaupmanninum og bað fólk sem hefði upplýsingar að hafa samband við apótekið eða lögreglu.
Starfsmenn Hopp sáu bíl fyrirtækisins í eftirför lögreglu
Vísir greindi frá því í gærkvöld að lögregla hafi haft afskipti af ökumanni deilibíls Hopp-fyrirtækisins eftir að honum hafði verið ekið um göngustíga í Fossvogi.
Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp, segist ekki geta staðfest að ökumaðurinn sé sá sami og braust inn í apótekið, en hún segir starfsmenn Hopp hafa séð bíl fyrirtækisins í eftirför lögreglu. Í öllum ökutækjum Hopp er staðsetningartæki og segir Kristín því alltaf vitað hvar hver bíll sé hverju sinni.
Fyrirtækið sektar þá sem brotið hafa skilmála Hopp en segir Kristín ekki liggja fyrir hvort þeir hafi verið brotnir í þessu tilviki.