Stórleikarinn Brad Pitt viðurkennir að hann sé aftur byrjaður að drekka áfengi eftir að hafa verið edrú í sjö ár. Í nýju viðtali við Esquire tímaritið var hann spurður út í edrúmennskuna þegar hann bauð blaðamanninum vín á heimili sínu í Los Angeles.„Ég var edrú í sjö ár. Og svo byrjaði ég aftur að drekka,“ sagði hann hlægjandi. „Ég drekk betur núna. Ég fékk nokkrum sinnum of mikið sjálfstraust og hugsaði: Já, nei, þetta er ekki gott fyrir mig. Ekki í miklu magni.“
Brad Pitt byrjaður aftur að drekka