Sveitarstjórn Borgarbyggðar fjallaði í síðustu viku um áform þess efnis að byggja upp vindorkuver við Alviðru. Þetta var gert vegna umsagnar til faghóps 3 í rammaáætlun sem fer yfir það í hvaða flokka virkjanakostir falla. Hún leggst gegn því að Alviðra fari í nýtingarflokk að svo stöddu.
Sveitarstjórnin lýsir margvíslegum efasemdum um ágæti þess að verið rísi. Hún segir verulega óvissu ríkja um hvert sé raunverulegt framlag vindorkuvers við Alviðru til orkuöryggis landsins. Þar vísar sveitarstjórn til þess að vindorka sé breytilegur orkugjafi sem krefjist jöfnunarafls, orkugeymslu eða annarra lausna til að tryggja afhendingaröryggi.
Þessu til viðbótar telur sveitarstjórn að stórar vindmyllur geti haft veruleg áhrif á landslag og ásýnd því þær verði sýnilegar á stóru landsvæði og geti haft áhrif á það hvernig fólk upplifir landslag, náttúru og útivist langt út fyrir framkvæmdasvæðið sjálft.
Loks segir sveitarstjórnin að svo stórar framkvæmdir geti skapað ágreining milli ólíkra hagsmuna og haft áhrif á samfélagslega sátt. Hún segir mikilvægt að líta til þess við ákvörðun um framtíð vindorkukosts við Alviðru.