Kona og maður voru handtekin í New York í dag eftir að hafa klifið á topp Empire State-byggingarinnar. Þar hífðu þau upp fána og virtust trúlofast áður en lögregla handtók þau.
Bæði voru þau klædd svörtum grímum þegar þau klifu upp á mjóa stálgrind efst á turnspíru byggingarinnar, í um 443 metra hæð, langt fyrir ofan svæðið sem almenningi er heimilt að fara á.
Þá hengdu þau upp fána á toppi byggingarinnar sem á stóð: „Þegar völd ástarinnar sigra ástina á völdum mun ríkja friður á jörð.“ Að því loknu færðu þau sig neðar á spíruna þar sem maðurinn virtist fara á skeljarnar og bera upp bónorð. Samkvæmt frétt BBC var parið á toppi byggingarinnar í um tíu mínútur.
Parið í haldi lögreglu
Lögreglan í New York sagði í samtali við BBC að parið hefði verið handtekið á vettvangi og væri í haldi lögreglu. Engar kærur hafa verið lagðar fram í málinu.
Óljóst er hvernig fólkinu tókst að komast upp á lokað svæði byggingarinnar. Staðarmiðlar greindu frá því að dróni frá lögreglunni í New York væri á lofti, auk þess sem þyrla lögreglunnar fylgdist með í nágrenni vettvangsins.
Þekktir áhættuklifrarar
Samkvæmt frétt The Guardian hefur lögreglan ekki staðfest hver hin handteknu eru. Ýmislegt bendir þó til þess að um sé að ræða Angelu Nikolau og Ivan Beerkus, rússneska áhættuklifrara sem eru þekktir fyrir svokallað rooftopping, þar sem fólk klifrar upp á háhýsi og önnur mannvirki án öryggisbúnaðar til að taka ljósmyndir og myndskeið. Parið hefur birt myndir af gjörningnum á Instagram.
Þau hafa áður vakið athygli fyrir sambærileg áhættuatriði víða um heim og komu meðal annars fram í Netflix-heimildarmyndinni Skywalkers: A Love Story.
Auglýsir 130.000 króna bónorðspakka
Haft er eftir talsmanni Empire State-byggingarinnar að athæfið hafi ekki skapað hættu fyrir aðra. Hann sagði að parið hefði getað nýtt sér opinberan bónorðapakka byggingarinnar í stað þess að klifra upp á turnspíruna.
Pakkinn, sem nefnist Happily Ever Empire Proposal Package, kostar 1.000 Bandaríkjadali, eða um 130 þúsund íslenskar krónur, og felur meðal annars í sér afnot af útsýnispalli byggingarinnar fyrir bónorð.