Bogi Ísak Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari og ríkislögreglustjóri, er látinn. Hann var 85 ára að aldri. Morgunblaðið greinir frá andlátinu. Þar segir að hann hafi látið lífið á heimili sínu 13. ágúst eftir stutt en erfið veikindi.
Bogi fæddist á Siglufirði 24. nóvember 1940.
Hann á fjölbreyttan starfsferil að baki. Hann lauk lögfræðiprófi við Háskóla Íslands undir lok sjöunda áratugarins og starfaði meðal annars sem sýslumaður í Suður-Múlasýslu.
Bogi varð fyrsti ríkislögreglustjóri hér á landi árið 1997. Hann var skipaður ríkissaksóknari 1998 og gegndi því embætti í tuttugu ár ásamt því að vera settur ríkissaksóknari í einstökum málum síðar.
Eftirlifandi eiginkona Boga er Elsa Petersen. Þau eignuðust þrjú börn, Bernhard Nils, Boga Nils og Önnu Maríu, níu barnabörn og sex barnabarnabörn.