BMX brós urðu til í kjölfar sjónvarpsþáttanna Ísland Got Talent árið 2015 þegar strákarnir höfnuðu í öðru sæti. Frá þeim tíma hafa þeir ekki stoppað enda haldið fjölmargar hjólasýningar um allt land og haldið fjölmörg hjólanámskeið fyrir börn og unglinga.
Á námskeiðunum er mikið lagt upp úr öryggisatriðum eins og hjálmanotkun.
Hópurinn hefur haldið sýningar um allt land. Þeir voru m.a. með eina sýningu nýlega í íþróttahúsinu á Flúðum þar sem þeir sýndu listir sínar.
Magnús Bjarki Þórlinsson hjá BMX brós segir að þeir hafi farið hringinn tvisvar eða þrisvar í sumar. „Þessu linnir ekki, við verðum að halda okkur við,“ segir hann.
Benedikt Benediktsson, sem er líka í BMX brós, bætir við: „Við erum orðnir svolítið gamlir, 31 árs við tveir og Krulli þriðji er 35 ára, þannig að við þurfum alveg að halda okkur við en við eigum mörg, mörg ár eftir“
Benedikt skýtur á 15 ár.
„Algjörlega, í það minnsta,” segir Magnús.
Strákarnir leggja mikla áherslu á forvarnir og að alltaf séu hjálmar á höfðinu þegar hjólað er, jafnt á börnum sem fullorðnum. Námskeið strákanna eru alltaf vinsæl en nýlega sóttu um 30 krakkar námskeið á Selfossi þar sem þeim voru kenndar ýmsar þrautir.
„Fyrstu tveir dagarnir, þá var heiðskírt og 30 stiga hiti en nú er svona smá meira íslenskt sumar, pínu rigning. Krakkarnir hafa bara meira gaman af þessu jafnvel,“ segir Benedikt.
„Það skiptir svo miklu máli að vera ekki bara að hjóla og sýna, heldur líka að leyfa krökkunum að prófa og kenna þeim og koma fleirum í sportið,” segir Benedikt.
Og krakkarnir voru hæstánægðir með námskeiðið.
Inntur eftir því hvað sé skemmtilegast við námskeiðið segir Patrekur Bjarnason: „Það er bara að hjóla öll saman og stökkva, læra hjá BMX brós. Það er rosalegt, þeir eru geggjaðir,“ segir hann.