Bílstjóri sem velti bíl á Snæfellsnesi í október hefur verið ákærður vegna lögbrota í tengslum við þá ökuferð. Lögreglan á Vesturlandi ákærði manninn fyrir að aka í atvinnuskyni án leyfis og fyrir að stunda ferðaþjónustu án þess að hafa til þess leyfi.
Bílstjórinn reyndist vera erlendur ríkisborgari sem býr ekki hér á landi og hafði ekki rekstrarleyfi til að stunda farþegaflutninga í atvinnuskyni hér á landi. Lögregla segir að hann hafi þó ekið með farþega gegn gjaldi daginn í október þegar bíllinn endaði utan vegar. Samkvæmt skráningarnúmeri bílsins ók maðurinn Land Rover Discovery.
Ákæran á hendur manninum var birt í Lögbirtingablaðinu í dag. Það þýðir að ekki hefur tekist að birta honum hana í persónu. Maðurinn er kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Ef hann mætir ekki má hann búast við að fjarvera hans verði túlkuð sem játning og hann dæmdur eftir því.
Sama dag varð annað slys á þessum slóðum þegar 42 erlendir ferðamenn voru í rútu sem fór út af veginum í Seljafirði að kvöldi 6. október. Hún valt og hafnaði á hvolfi.
Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaflega var sagt að bílstjóri rútunnar sem valt sama dag hefði verið ákærður.