William „Billy“ Long hefur formlega tekið til starfa sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Hann afhenti Höllu Tómasdóttur forseta Íslands trúnaðarbréf sinn á Bessastöðum í dag, að því er fram kemur í tilkynningu bandaríska sendiráðsins á Facebook.
„Ísland og Bandaríkin eiga sér langa sögu samstarfs, allt frá öryggis- og varnarmálum og viðskiptum til lista, bókmennta og landkönnunar,“ er haft eftir Long í færslunni.
„Ég hlakka til að vinna með íslensku þjóðinni að því að dýpka samstarf okkar og styrkja böndin milli þjóðanna tveggja.“
Long hefur vakið athygli hér á landi og þótt umdeildur, ekki síst vegna ummæla sem hann lét falla við bandaríska þingmenn í byrjun árs þar sem hann grínaðist með að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna.
Þau féllu í grýttan jarðveg hér á landi og fór svo að Long baðst aföskunar skömmu síðar og ítrekaði að þau hefðu verið sögð í gamni.
Enginn sendiherra í rúmlega ár
Carrin F. Patman, sem Joe Biden tilnefndi sendiherra Bandaríkjanna hérlendis, lét af störfum eins og aðrir pólitískt skipaðir sendiherrar í kjölfar embættistöku Donalds Trumps í janúar 2025. Síðan þá hefur Erin Sawyer verið starfandi sendiherra.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilefndi Long sem sendiherraefni sitt í september í fyrra.