Yfirvöld í borginni Kherson í Úkraínu hafa beðið íbúa að yfirgefa borgina. Héraðsstjórinn Oleksandr Prokudin sagði í færslu á Telegram að hann biðlaði til allra íbúa um að yfirgefa borgina, sérstaklega barnafjölskyldna og eldri borgara.
Kherson er í suðurhluta Úkraínu á norðurbakka Dnipro-árinnar. Miklar árásir hafa verið undanfarið á borgina og í gær varð mikið tjón á varmaorkuveri borgarinnar í árásum Rússa. Varmaorkuverið sér stórum hluta borgarbúa fyrir hita og því eru margir án húshitunar eftir árásina.
Kyiv Independent segir að þrátt fyrir árásirnar séu enn yfir 60.000 íbúar í borginni, þar með talið um 4.000 börn.