Neyðarlínan, Fjarskiptastofa og fjarskiptafélögin vinna nú saman að því að komast að því hvers vegna íbúi á Skagaströnd náði ekki sambandi við Neyðarlínuna þegar hann þurfti þess fyrr í vikunni.
Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Fjarskiptastofu og Jón Svanberg Hjartarson framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segjast sammála þeirri kenningu að líklega hafi sambandsleysið tengst lokun á rafmagnskerfum hér á landi.
Tekið er skýrt fram að um sé að ræða kenningu sem ekki er enn búið að sannreyna.
1% tækja á landsvísu geti ekki haft samband
„2g-kerfum var lokað um áramótin og 3g-kerfunum núna 1. júní,“ segir Hrafnkell.
Segir hann að eftir lokun kerfanna séu um 1% símtækja á landsvísu þannig gerð að ekki er hægt að hafa samband við neyðarlínu með þeim. Mikil vinna hefur verið sett í að vekja athygli á þessu og hefur fjöldi slíkra tækja lækkað frá um 30.000 í byrjun árs, niður í 6.000.
Hann bendir einnig á að jafnvel ákveðin 4G-tæki geti átt í erfiðleikum með að hafa samband við neyðarlínu vegna ferlis sem á ensku er kallað circuit switch fallback.
„Á sínum tíma voru 3G og 2G-kerfin mun útbreiddari en 4G-kerfin sem voru að koma inn. Þá datt einhverjum í hug að láta 4G-símana fara niður í 3G-tæknina þegar hringt er í neyðarlínu því þá voru meiri líkur á að hann næði sambandi,“ segir Hrafnkell.
„Þannig getur fínasti 4G-sími virkað fullkomlega nema þegar þú hringir í 112.“
Hringja í 1280 til þess að athuga
Hrafnkell segir að unnið hafi verið að því að hafa samband við tæki sem geti lent í erfiðleikum með að ná sambandi við neyðarlínuna, jafnvel hafi í einhverjum tilvikum verið hringt í fólk.
Einfaldasta leiðin til að ganga úr skugga um hvort að það sé í lagi með símtæki er þó að hringja í númerið 1280. Ef ekki næst samband við það númer skal hafa samband við fjarskiptafélagið sitt og fá aðstoð.
Alvarlegt samfélagsmál
Jón Svanberg segir það vera hagsmuni almennings sem liggi fyrir í þessu alvarlega máli.
„Fólk á að geta náð sambandi við neyðarnúmer þegar það þarf, en til þess að það sé hægt þarf ýmislegt að spila saman,“ segir Jón og bætir við að það sé löng og flókin lína frá því að einhver hringi úr símanum sínum þangað til hann fái samband.
„Fyrst þarf að vera fjarskiptasamband þar sem þú ert, síminn þarf að vera í lagi og studdur af þeim kerfum sem eru í notkun, síðan þarf tæknibúnaðurinn sem kemur þessu til skila til okkar að vera í lagi.“
Ísland þó í mjög góðum málum
Miðað við önnur lönd segir Jón að Ísland sé eins vel sett og það gæti verið, það sé þó óásættanlegt að 6.000 tæki myndu ekki ná sambandi við 112 á neyðarstundu.
Hann skorar á fólk að láta athuga með símtæki sín og skorar einnig á aðstandendur eldra fólks að kanna þetta fyrir fólkið sitt.

