Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi þingsályktun 215 þingmanna neðri deildar Bandaríkjaþings, sem hlaut nauman meirihluta gegn 208 nei-atkvæðum í gærkvöldi og mælir fyrir um brottflutning bandarískra hermanna frá Íran í miðjum samningaviðræðum sem Trump kveður raunar vera á lokastigi.
Segir forsetinn ályktunina, sem fjórir samflokksmenn hans í Repúblikanaflokknum greiddu atkvæði sitt, bera „óþjóðrækni“ þeirra vitni og spilla samningaviðræðunum við klerkastjórnina í Íran sem nú standa yfir.
„Hver myndi gerast svo óþjóðlegur í gjörðum sínum?“ spyr Trump og bætir því við að flokksmönnum hans sé fullkunnugt um stöðu viðræðnanna.
Hefur 60 daga til samþykkis þingsins
Brautargengi þingsályktunar fulltrúadeildarinnar er fyrsta dæmið um að deildin, þar sem repúblikanar hafa tögl og hagldir, leggi blessun sína yfir mótbyr gegn stríðsrekstri Bandaríkjanna á hendur Írönum síðan þeir létu til skarar skríða gegn klerkaveldinu 28. febrúar.
Demókratar saka Trump hins vegar um stjórnarskrárbrot með aðgerðum sínum sem hann hóf án þess að leita samþykkis þingsins til að fara með oddi og egg á hendur öðru ríki en samkvæmt hervaldslögum Bandaríkjanna, War Powers Act, hefur sitjandi forseti 60 daga frá upphafi valdbeitingar til að hljóta samþykki þingsins til hennar.
„[Demókratar] sæju land sitt fyrr falla en að veita mér annan, af mörgum, sigrum,“ skrifar Trump gramur á samfélagsmiðil sinn Truth Social. „Repúblikanarnir fjórir, það er allt annar handleggur – Þeir eru ÆSINGAMENN [e. grandstanders]. Þeir ættu að skammast sín,“ ritar forsetinn þar enn fremur.