Ber einhver ábyrgð á þessu heimili

Jón Magnússon skrifar:
Athyglisvert að fylgjast með umræðum gærdagsins. Forsætis- og utanríkisráðherra virtust ekki átta sig á, að þjóðin hafði hafnað stefnu þeirra í utanríkismálum. Inga Sæland gekk enn lengra og virtist ekki átta sig á einu eða neinu eða til hvers hún var komin í sjónvarpssal en það er annað mál.
Þorgerður Katrín er svo veruleikafirrt, að hún skynjaði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar svo, að stjórnarandstaðan ætti þegar í stað að leggja fram frumvarp um að lög ESB giltu umfram íslensk lög. Var þjóðin um það spurð eða var hún að kalla eftir því?
Afleiðingar af því að þjóðin hefur sagt sitt álit eru m.a. þær, að þegar í stað ber ríkisstjórninni að leggja fyrir Alþingi að aðildarviðræðum við ESB verði slitið í samræmi við vilja meirihluta þjóðarinnar. Þingmenn geta síðan átt það við samvisku sína hvernig þeir greiða atkvæði en það er líka annað mál.
Í öðru lagi verður að taka til skoðunar með hvaða hætti EES samstarfið geti nýst okkur betur.
Í þriðja lagi verður ekki séð,að utanríkisráðherra komist hjá því að segja af sér, þar sem stefnu hennar í utanríkismálum hefur verið hafnað.
Þar með er ekki sagt að hún geti ekki gegnt ráðherraembætti. En það er fráleitt, að hún sitji sem utanríkisráðherra eftir að þjóðin hafnaði stefnu hennar. Þorgerður dró ESB fánann að húni og verður að sætta sig við, að þjóðin sagði nei við þeirri vegferð.