Spænskur ríkisborgari, Benjamin Marcelino Acevedo, sem er fæddur árið 1983, og afplánar dóma á Litla-Hrauni, er ákærður fyrir að hafa skipulagt og framkvæmt innflutning á tæplega 1,4 kg af 80-82% sterku kókaíni þann 18. apríl árið 2023. Skipulagði Benjamin ferð hins þá sextuga Jose Enrique Rial Esteves, sem flutti fíkniefnin hingað til lands sem farþegi í flugi frá Frankfurt í Þýskalandi til Keflavíkurflugvallar.
Benjamin sagður hafa skipulagt innflutning á kókaíni