Auk Þorbjargar verða viðstödd skóflustunguna Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Ragna Bjarnadóttir, fangelsismálastjóri.
Útboð á jarðvinnuframkvæmdum við fangelsisuppbygginguna fór fram í sumar. Verkið felur meðal annars í sér aðstöðusköpun, uppsetningu vinnubúða, vegagerð, lagningu veitna og rafstrengja, afvötnun svæðis, jarðvinnu fyrir mannvirki fyrsta áfanga, fyllingar, jarðvegsskipti og uppsetningu ytri netgirðingar.
Nýtt öryggisfangelsi á að leysa af núverandi fangelsi að Litla-Hrauni sem til samanburðar er átta deildir og hýsir 83 karlfanga. Öryggisfangelsið verður byggt í tveimur áföngum; fyrst verður lögð áhersla á almenn fangarými sem rúma 56 fanga, skólabyggingu, eina vinnustofu, vöruhús, hliðbyggingu, sem og gesta-/starfsmannabílastæði.
Í seinni áfanga verður byggð öryggisdeild sem rúmar 16 fanga, fyrirmyndardeild sem rúmar 56 fanga, önnur vinnustofa, starfsmannahús og sér starfsmannabílastæði.
Í fréttum í nóvember árið 2024 var greint frá því að kostnaður við byggingu nýs fangelsis í landi Stóra-Hrauns væri áætlaður um 18 milljarðar króna.