Bein fundust nærri heimili móður Savannah Guthrie

Þremur mánuðum eftir að móðir sjónvarpskonunnar Savönnuh Guthrie var numin á brott frá heimili sínu í Arizona hafa yfirvöld staðfest að mannabein hafi fundist skammt frá heimili hennar.
Lögreglan í Tucson sagði að beinin hefðu fundist 7. maí, um ellefu kílómetra frá heimili Nancy Guthrie, sem er 84 ára gömul.
Talsmaður lögreglunnar sagði þó að fundurinn tengdist ekki glæpsamlegu athæfi heldur væri um að ræða „fornleifafræðilega mannfræðirannsókn“. Þá kom fram að mannfræðideild University of Arizona og réttarmeinafræðingar í Pima-sýslu aðstoðuðu við rannsóknina.
Nancy Guthrie hvarf aðfaranótt 1. febrúar þegar hún var numin á brott frá heimili sínu. Málið hefur verið til rannsóknar síðan og er nú komið á fjórða mánuð.
Savannah Guthrie hefur á sama tíma snúið aftur til starfa í morgunþættinum Today, en hún og systkini hennar, Camron Guthrie og Annie Guthrie, hafa tjáð sig opinberlega um hvarfið.
Í viðtali við Hoda Kotb í mars sagði Savannah fjölskylduna hafa verið „í kvalræði“ frá því móðir hennar var numin á brott.
„Þetta er óbærilegt,“ sagði hún og bætti við að hún vaknaði á hverri nóttu og hugsaði um þann ótta sem móðir hennar kynni að hafa upplifað.
Savannah, sem á tvö börn með eiginmanni sínum Michael Feldman, sagði þó að hún héldi enn í vonina.
„Ég held í trúna mína,“ sagði hún. „Hún þarf að koma heim núna.“