Skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt að staðartíma ók flutningabíll að vörumóttöku British Museum í London með Bayeux-refillinn innanborðs. Mikil leynd hvíldi yfir flutningunum. Lögreglan fylgdi bílnum frá leynilegum brottfararstað í Frakklandi.
Útvalinn hópur gesta tók á móti flutningabílnum við British Museum, þeirra á meðal safnstjórinn og sendiherra Frakklands í Bretlandi.
Út úr bílnum kom rammgerður kassi sem geymir refilinn. Vel var fylgst með hita- og rakastigi í kassanum til að reyna að tryggja að hann skemmdist ekki við flutninga. Forverðir beggja vegna Ermarsunds höfðu áhyggjur af því að flutningur verksins gæti valdið því skemmdum enda er það afar viðkvæmt.
Þá hékk kassinn inni í öðrum kassa í gormum. Það átti að verja verkið fyrir hristingi við flutningana.
Refillinn, sem er nærri sjötíu metra langur, sýnir aðdraganda og atburðarás orrustunnar við Hastings árið 1066. Margt bendir til þess að hann hafi verið saumaður í nunnuklaustri á Bretlandi. Hann er ein helsta þjóðargersemi Frakka en þar hefur hann verið í rúm 900 ár.
Keir Starmer fráfarandi forsætisráðherra Bretlands og Emmanuel Macron forseti Frakklands greindu frá samkomulagi um lán refilsins til British Museum í fyrra.
Sýning á þessum merka grip verður opnuð almenningi í september. British Museum hefur nú þegar selt yfir 100 þúsund aðgöngumiða á sýninguna.