Bandaríska leikkonan Kaylee Hottle, sem öðlaðist alþjóðlega athygli fyrir hlutverk sitt sem Jia í stórmyndunum Godzilla vs. Kong og Godzilla x Kong: The New Empire, er látin aðeins 18 ára að aldri eftir alvarlegt bílslys í Maryland í Bandaríkjunum.Texas School for the Deaf í Austin, þar sem Hottle var á lokaári í framhaldsskóla, staðfesti andlát hennar í gær.Samkvæmt upplýsingum frá embætti sýslumanns í Frederick-sýslu var Hottle farþegi í Honda Accord-bifreið sem fór út af veginum og hafnaði á steyptu ræsi um klukkan þrjú aðfaranótt þriðjudags.
Barnastjarna látin eftir hræðilegt slys