„Barn síns tíma“ til sölu á gjafverði

Rúmgott einbýlishús á eftirsóttum stað í Fossvoginum við Grundarland 20 hefur verið sett á sölu fyrir 249,9 milljónir króna. Húsið stendur innst í lokaðri götu við grænt svæði og er skráð 259 fermetrar að stærð, auk jafn stórs óskráðs kjallara undir öllu húsinu. Fermetraverð eignarinnar er skráð 482.153 krónur. Húsið var byggt árið 1968.
„Húsið er barn síns tíma en bíður upp á frábæra möguleika fyrir þá sem vilja breyta og bæta,“ segir meðal annars í lýsingu á húsinu.
Eignin stendur á stórri og gróinni lóð og býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fjölskyldur eða þá sem vilja þróa eignina frekar. Innangengt er úr bílskúr niður í kjallarann þar sem góð lofthæð er og aðgengi að lögnum efri hæðar. Samkvæmt upplýsingum hefur þar verið útbúinn vísir að íbúð með eldhúsi, baðherbergi, stofu og herbergi, auk þess sem auðvelt ætti að vera að bæta við sérinngangi og stækka glugga.
Á aðalhæð hússins eru fjögur til fimm svefnherbergi. Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp og þaðan inn á gestasnyrtingu. Þvottahús er einnig flísalagt með innréttingu. Hol, stofa og borðstofa eru parketlögð og í stofurými er arinn sem setur hlýlegan svip á rýmið.
Eldhúsið er parketlagt með eldri innréttingu og borðkrók. Á herbergjagangi, þar sem loftgluggar gefa rýminu sérstakan karakter, eru þrjú barnaherbergi auk hjónaherbergis með fataherbergi inn af. Útgengt er á verönd bæði úr hjónaherberginu og einu barnaherbergjanna. Baðherbergið er flísalagt með bæði baðkari og sturtu.
Auk þess er geymsla eða aukaherbergi með parketi og innangengt þaðan í bílskúrinn. Þá er kjallarinn talinn bjóða upp á mikla möguleika til endurbóta og frekari nýtingar fyrir nýja eigendur.