Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að mikill árangur hafi náðst í viðræðum við Írana undanfarna daga. Því ætli Bandaríkjaher að stöðva fylgd með skipum um Hormússund að svo komnu. Bandaríkjaforseti segir þessa ákvörðun tekna til að sjá hvort hægt sé að komast að friðarsamkomulagi við Írana. Herkví Bandaríkjahers um hafnir í Íran er þó enn í fullu gildi, samkvæmt fyrirskipun Trumps.
Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna tilkynnti fyrr um kvöldið að Bandaríkin hefðu lokið aðgerðum gegn Íran en verði gerðar árásir á skip muni bandaríski herinn svara af fullum krafti.
Fylgd Bandaríkjahers með skipum um Hormússund, aðgerð sem Trump kallar Project Freedom, hófst á mánudaginn. Íranar gerðu árásir á skip í gær og að minnsta kosti eitt flutningaskip varð fyrir árás. Ekki liggur fyrir hvort skipið hafi orðið fyrir tjóni eða hvort einhver umhverfisáhrif eða mengun hafi orðið við árásina.
Samkvæmt danska skipaflutningafyrirtækinu Maersk sigldi eitt skipa fyrirtækisins undir fylgd Bandaríkjahers um Hormússund í gær án þess að verða fyrir árás.
Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, er nýkominn til Peking í Kína, þar sem hann fundar með Wang Yi utanríkisráðherra Kína. Kína er stór viðskiptaþjóð Írana með olíu.