Bandaríkjaher gerði í kvöld árásir á ratsjárstöðvar við suðurströnd Írans. Stjórnstöð hersins segir að hann hafi skotið niður fjóra íranska dróna sem flugu í átt að Hormússundi. Skipaumferð hafi stafað bein hætta af drónunum. Í kjölfarið hafi herinn ráðist á ratsjárstöðvar í borginni Goruk og á eyjunni Qeshm. Árásirnar eru sagðar geta komið í veg fyrir frekari árásir.
Herir Írans og Bandaríkjanna hafa reglulega skipst á árásum að undanförnu, þrátt fyrir vopnahlé sem tók gildi áttunda apríl. Viðræður um varanleg endalok stríðsins hafa ekki borið árangur.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við NBC í kvöld að Íranar ættu enn um fimmtung af þeim flugskeytum sem voru í vopnabúri þeirra við upphaf stríðsins. Þeir gætu því enn ráðist í hernaðaraðgerðir. „Þeir eiga enn flugskeyti, þeir eiga einhverja dróna. Prósentulega myndi ég segja að þeir eigi kannski 21 eða 22 prósent af flugskeytum sínum,“ sagði forsetinn.
Í dag greindi Íransher frá því að hann hefði skotið tveimur flugskeytum „til viðvörunar“ í átt að tveimur bandarískum tundurspillum í Ómanflóa. Bandaríkjaher hafnar þeirri fullyrðingu.