Bandaríkjastjórn og bráðabirgðastjórn Venesúela hafa gert samning sem veitir Bandaríkjunum meirihlutastjórn yfir ríflega 65 milljörðum tunna af olíuforða landsins.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að samningurinn sé „stærsti olíusamningur sögunnar“. Með honum tvöfaldist olíuforði Bandaríkjanna, olíubirgðir eigi eftir að aukast og bensínverð eigi eftir að lækka í Bandaríkjunum vegna samningsins. Forsetinn greindi frá samningnum í færslu á Truth Social.
Samningurinn sagður stuðla að endurreisn hagkerfisins
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna Marco Rubio segir að samningurinn sé hagstæður fyrir bæði Bandaríkin og Venesúela. Með samningnum aukist einkafjárfestingar upp á 100 milljarða dollara í Venesúela, sem mun stuðla að endurreisn hagkerfisins í landinu.
Delcy Rodriguez, settur forseti Venesúela, fagnar sömuleiðis samningnum og segir hann sögulegan. Í færslu á X fagnaði hún hugsanlegum fjárfestingum upp á 100 milljarða dollara og skatttekjum upp á 209 milljaða af þeim fyrir ríkið.
Hún segir að samningurinn geri ráð fyrir þróun á 17 mikilvægum olíuvinnslusvæðum sem hafi framleiðslugetu upp á 65 milljarða olíutunna. Fjárfestingarnar verði nýttar til að endurreisa og nútímavæða olíuiðnaðinn í Venesúela, skapa störf og auka hagsæld í landinu.
Margt enn óljóst
Hvorki Trump né Rodrigues hafa greint frá smáatriðum samningsins og hvorki hefur verið gefið upp hvaða einkafyrirtæki koma að fjárfestingum né hvaða olíuvinnslusvæði um er að ræða. Þá er heldur ekki ljóst hvernig Bandaríkin ætli að útfæra meirihlutastjórn sína yfir olíunni, sem Bandaríkjaforseti vísar í, í færslu sinni.
Mikið í húfi fyrir Bandaríkjaforseta
Venesúela býr yfir mesta olíuforða heims og talið er að olíuforðinn sé um 303 milljarðar tunna. Venesúela framleiðir þó aðeins um eitt prósent af heildarframleiðslu í heiminum, sem má að hluta til rekja til þess að innviðir eru niðurníddir í landinu.
Bandaríkjaforseti hefur ekki farið í grafgötur með áhuga sinn á að tryggja Bandaríkjunum olíu frá Venesúela. Hátt bensínverð í Bandaríkjunum er stórt pólitískt mál í landinu.
Bensínverð hefur hækkað mikið síðan Bandaríkin fóru í stríð við Íran sem hafði mikil áhrif á framboð og olíuverð um allan heim. Hratt hefur dregið úr vinsældum hans frá því að stríðsátökin hófust sem gæti reynst honum og Repúblikanaflokknum dýrkeypt í þingkosningunum í nóvember.