Bandaríkin og Sádí Arabía skrifuðu í kvöld undir tvo samninga um kjarnorkumál. Annars vegar um friðsæla samvinnu í kjarnorkumálum og hins vegar tvíhliða samning um kjarnorkuöryggisráðstafanir. Undir samningana skrifuðu Chris Wright og Abdulaziz Bin Salman prins, orkumálaráðherrar þjóðanna tveggja.
Í tilkynningu frá orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna segir að samningarnir leggi lagalegan grundvöll að áratugalöngu samstarfi virði milljarða dollara. Þá munu þeir stuðla frekar að takmörkun á útbreiðslu kjarnorkuvopna á heimsvísu. Samningurinn um friðsæla samvinnu í kjarnorkumálum muni tryggja bandarískum fyrirtækjum „mjög gott aðgengi“ að sádíarabísku kjarnorkuáætluninni.
Samningarnir bíða nú samþykkis öldungadeildar Bandaríkjaþings.
Wright segir að samningarnir muni standa undir hæstu kröfum um kjarnorkuöryggi og takmörkun á útbreiðslu kjarnorkuvopna.
„Samningarnir endurspegla staðfestu þjóðanna í að styrkja viðskiptasamband sitt, auka velsæld heima fyrir og tryggja öryggi bandamanna okkar erlendis,“ er haft eftir Wright í tilkynningu ráðuneytisins. „Þökk sé Trump forseta er bandaríska kjarnorkuendurreisnin hafin.“
Meiri hætta á smíði kjarnorkuvopna
Rosemary Kelanic, sérfræðingur í málum Mið-Austurlanda, sagði í samtali við BBC áður en tilkynnt var um undirritunina það koma talsvert á óvart að Bandaríkin ætli að skrifa undir samning sem leyfi Sádí Arabíu að koma sér upp aðstöðu til að auðga úran.
„Bandaríkin hafa aldrei gert það áður, við höfum aldrei aðstoðað aðra þjóð við að auðga á sínu eigin landi,“ segir Kelanic.
Hún segir að um leið og þjóð geti framleitt sitt eigið kjarnorkueldsneyti sé mun meiri hætta á að hún búi sér til kjarnorkuvopn.