Félagið B12 Space ehf. var úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 15. apríl 2026, samkvæmt tilkynningu sem birt var í Lögbirtingablaðinu í dag.Frá því að systurnar Theodóra og Sigfríð Rut Gyrðisdætur opnuðu verslunina B12 Space við Bankastræti 12 árið 2023 hefur fataverslunin haslað sér völl á íslenskum tískuvörumarkaði, einkum meðal kvenna. Þar voru aðallega seld notuð föt en einnig endurunnar flíkur og íslensk hönnun.Árið 2024 velti félagið 23 milljónum króna en tapaði þó tveimur milljónum það ár, samkvæmt ársreikningi. Verslunin færði sig svo á Laugarveg 23 í apríl 2025, en þar hefur nú verið skellt í lás.B12 Space er hefur síðasta árið verið til húsa í galleríhúsnæði við Laugaveg 23, við hliðina á ísbúðinni Gellatto Gaelletta.Vísir/Agnar