Auðunn Lúthersson hefur búið í Los Angeles í Bandaríkjunum síðustu ár þar sem hann starfar sem tónlistarmaður. Hann flutti þangað í kjölfar ásakana í hans garð um kynferðislega áreitni og ógnandi tilburði.
Gagnrýni um tónleika í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti
Vestanhafs hefur Auðunn gefið út tónlist undir nafninu Luthersson, þar á meðal nokkrar stuttskífur og fjölda smáskífa. Hann hefur verið duglegur að sýna frá laga- og tónlistarmyndbandgerð sinni á samfélagsmiðlum.
Auðunn greindi frá því árið 2023 að hann væri kominn með kærustu, sú hét Cassandra, var mjög prívat og ekki á samfélagsmiðlum. Það samband hefur þó greinilega runnið sitt skeið fyrst Auðunn er byrjaður með Tokie.
Auðunn segist hafa kynnst Tokie þegar þau fengu bæði hlutverk sem dansarar í tónlistarmyndbandinu við lagið „Bring Your Love“ hjá Madonnu og Sabrinu Carpenter.
„Þetta var mjög rómantískt. Símarnir okkar voru teknir af okkur útaf leyndinni í kringum myndbandið. Ég var strax hrifinn af henni fyrsta daginn og svo annan daginn bálskotinn,“ segir Auðunn í tilkynningu.
Samkvæmt Auðuni er Tokie upprunalega frá Kína en starfar núna sem dansari og leikkona í Los Angeles og hefur þar unnið með tónlistarfólki á borð við Tylu, Charli XCX og Lisu.
Sjálfur segist Auðunn hafa fengið hlutverk í hryllingsmyndinni Crowbar sem kemur út á næsta ári og svo heldur hann tónleika með hljómsveit í Austurbæjarbíói þann 4. september næstkomandi