Stjórnvöld hafa ekki enn átt í beinum viðræðum við Elkem á Íslandi vegna breyttrar skráningar fyrirtækisins. Greint var frá því í morgun að móðurfélagið hefði skilgreint Elkem Iceland sem aflagða starfsemi og tekið eignir til hliðar til sölu. Elkem, sem er skráð á markað í Noregi, segir í ársuppgjöri að tollar Evrópusambandsins hafi haft neikvæð áhrif á afkomu félagsins.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir stjórnvöld fylgjast með málinu.
„Það er auðvitað miður þegar svona mikilvæg grunnstarfsemi hjá okkur lendir svona niðri á milli, við náum ekki inn fyrir varnargirðingar sem Evrópusambandið reisir utan um sín ríki í þessu tollastríði sem ríkir í heiminum,“ segir Hanna Katrín.
„Þarna erum við mögulega að sjá einhverja afleiðingu þess. Við höldum auðvitað áfram í fyrsta lagi mikilli hagsmunagæslu sem hefur skilað góðum árangri hingað til.“
Verið sé að skoða framhaldið og unnið verði í þéttu samstarfi við Elkem og Álfheiði Ágústsdóttur, forstjóra fyrirtækisins.
„Það er auðvitað ástæða til að hafa áhyggjur heilt yfir af samkeppnishæfni okkar á alþjóðlegum markaði. Við erum þetta lítil og við erum með mikinn útflutning, það ríkir tollastríð í heiminum, menn eru að keppast við að gæta sinna hagsmuna.“
Ísland lendi á milli í efnahagslegum átökum eða tollastríði Bandaríkjanna, Evrópusambandsins og annarra aðila.
„Það er alltaf hættan þannig að við þurfum að beita öllum okkar kröftum í að tryggja okkar hagsmuni af því að lykilmarkmiðið okkar allra er að verja alþjóðlega samkeppnishæfni okkar,“ segir Hanna Katrín.