Andy Burnam, forsætisráðherra Bretlands, átti í samskiptum við manneskju sem þóttist vera Susie Wiles, starfsmannastjóri Hvíta hússins. Bandaríski fjölmiðillinn Politico greindi frá.
Samkvæmt Politico skiptist Burnham á skilaboðum við manneskjuna áður en hann hafi farið að gruna að þetta væri ekki Wiles. Þau áttu ekki í samtali, aðeins samskiptum gegnum skilaboð.
Politico hefur þetta eftir fjórum embættismönnum, sem allir gæta nafnleyndar til að ræða málefni er varða þjóðaröryggi. Tveir embættismenn segja starfsmenn breska sendiráðsins í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, hafa verið svo áhyggjufulla yfir atvikinu að þeir hafi rætt það við fulltrúa í Hvíta húsinu.
Talsmaður bresku ríkisstjórnarinnar sagðist ekki tjá sig um málefni er varða þjóðaröryggi. Ein manneskja sem var upplýst um samskiptin sagði forsætisráðherrann hafa skipst á „nokkrum skilaboðum“ eftir að hann tók við embætti í júlí en hélt því fram að þau hefðu „enga þýðingu“.
Ekki er vitað hvað Burnham og eftirherman ræddu eða hvenær það var.
Fólk innan bresku ríkisstjórnarinnar hafði áhyggjur af því að tölvuþrjótar hefðu komist í síma Wiles. Það hefur gerst áður, í maí á síðasta ári. Þá sagði Wiles að síminn hennar hefði verið hakkaður eftir að einhver eftirherma, eða eftirhermur, notuðu tengliliðaskrá í símanum til að senda skilaboð til annarra háttsettra bandarískra embættismanna.
Alríkislögreglan, FBI, hóf rannsókn á því máli eftir að þingmenn í öldungadeild Bandaríkjaþings, ríkisstjórar og stjórnendur í viðskiptalífinu fengu skilaboð og símtöl frá einhverjum sem sagðist vera starfsmannastjóri Trump. Tölvuþrjótarnir komust inn í einkasíma Wiles, ekki vinnusímann.