„Áhugaverðir hlutir að gerast á þinginu í dag,“ skrifar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir í nýlegri Facebook-færslu.
Hún lagði fram sitt fyrsta frumvarp árið 2017, um afnám stimpilgjalds á kaupum einstaklinga á íbúðahúsnæði. Málið lagði hún fram fjórum sinnum áður en hún varð ráðherra en síðan tók Vilhjálmur Árnason málið og hélt áfram að leggja það fram.
„Sjálfstæðisflokkurinn hafði lækkað stimpilgjald fyrstu kaupenda um helming en með frumvarpinu vildum við ganga lengra og afnema það að fullu enda ekki um að ræða raunverulega gjaldtöku lengur heldur einfaldlega íþyngjandi skatt á þeim tímum þegar fólk er að kaupa sér íbúð,“ skrifar Áslaug.
„Í dag kemst málið síðan loksins til atkvæðagreiðslu og að því tilefni rifjaði Hildur Sverrisdóttir upp ræðu mína um málið þegar það kom fyrst til umræðu í þinginu. En líka orð þingmanna Viðreisnar sem virðast nú ætla að standa gegn því að frumvarpið nái fram að ganga. Enn ein staðfestingin að þar fer ekki fyrir flokkur sem vill lækka skatta.“
Með færslunni lét Áslaug fylgja myndskeið af þingfundi frá 19. desember árið 2017, þegar hún lagði frumvarpið fram.