Ásgerður Ragnarsdóttir verður skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. Dómsmálaráðherra hefur lagt þetta til við forseta Íslands eftir að nefnd um hæfni umsækjenda sagði í júní ekki hægt að gera upp á milli þeirra fjögurra sem sóttu um laust dómarasæti við Hæstarétt.
Þau eru öll Landsréttardómarar, auk Ásgerðar þeir Aðalsteinn E. Jónasson, Eiríkur Jónsson og Eyvindur G. Gunnarsson. Þorbjörg S. Gunnarsdóttir dómsmálaráðherra gat því sjálf valið á milli umsækjenda og ákveðið hver þeirra yrði skipaður hæstaréttardómari.
Ásgerður starfaði sem lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu í eitt og hálft eftir að hún lauk laganámi frá Háskóla Íslands 2004. Hún hlaut réttindi sem héraðsdómslögmaður árið eftir og fyrir Hæstarétti fyrir tíu árum.
Ásgerður var aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt frá árslokum 2005 þar til í september 2008. Sama ár lauk hún viðbótarmeistaragráðu frá Cambridge-háskóla.
Þá hóf hún störf á lögmannsstofu uns hún var skipuð dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur í ársbyrjun 2018 og sinnti því starfi þar til hún varð landsréttardómari 2023.
Ásgerður hefur verið forseti Félagsdóms, verið aðjúnkt við lagadeild HÍ og varadómari við Efta-dómstólinn auk þess að gegna fleiri trúnaðarstörfum. Hún hefur komið að gerð lagafrumvarpa, ásamt öðrum skrifað ritrýnt fræðirit, tvo bókarkafla og fimm fræðigreinar einnig með öðrum.