Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir strætisvagn og fólksbifreið hafa lent saman. Engir farþegar hafi verið í strætisvagninum.
Dælubíll og tveir sjúkrabílar voru sendir á slysstað. Ökumaður fólksbílsins hafi verið fluttur á slysadeild til skoðunar með minniháttar áverka.
Ekki liggur fyrir hvort einhverjum götum hafi verið lokað en aðgerðum er lokið á slysstað.