Þetta er meðal þess sem erlendir miðlar greina frá en í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) segir einnig að það hafi verið kunningi eða vinur leikkonunnar sem hringdi eftir aðstoð klukkan 13:51 á staðartíma.
Í tilkynningu frá lögreglunni á svæðinu er greint frá því að viðbragðsaðilar hafi hafið endurlífgun en án árangurs og Panettiere hafi verið úrskurðuð látin á vettvangi. Þá hefur komið fram að hún hafi verið í hjartastoppi þegar þá bar að garði.
Málið sé í rannsókn hjá embættinu í samvinnu við dánardómstjóra Greenville-sýslu. Frumrannsókn og krufning hafi ekki leitt í ljós nein merki um saknæmt athæfi eða þá vísbendingar þess efnis að andlátið hafi borið að með grunsamlegum hætti. Að svo stöddu yrðu engar frekari upplýsingar tiltækar.
Leikkonan, sem hefði fagnað 37 ára afmælinu sínu á föstudaginn, 21. ágúst, átti dótturina Kayu með Wladimir Klitschko árið 2014. Panettiere og Klitschko voru trúlofuð á þeim tíma en það vakti athygli þegar þau hættu saman árið 2018 að leikkonan veitti Klitschko fullt forræði.