Dómstóll í Bretlandi hefur bannað manni á þrítugsaldri að nota internetið og koma nálægt kvennaklósettum. Maðurinn hefur sjálfur lýst sér sem kvenhatara og incel.Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.Dómstóll í Cheltenham í vesturhluta Englands hefur bannað hinum 29 ára Victor Valentine að vera á netinu, hefur bannað honum að eiga reikninga á svokölluðum incel-spjallsíðum og bannað honum að sniglast í kringum kvennaklósett.
Alræmdur kvenhatari má ekki lengur vera á incel-grúbbum eða hanga við kvennaklósett