„Ekki góður staður fyrir ökumenn, ef þú ert ekki með níu manna hóp færðu ekki mat.“ Svona hljómar einnar stjörnu umsögn ökumanns sem fékk ekki frían mat þegar hann kom með ferðamenn á veitingastað á Vesturlandi í vikunni þegar sólmyrkvinn gekk yfir. Hilmar Þór Bergmann vekur athygli á umsögninni í færslu í Baklandi ferðaþjónustunnar en þar hafa áður skapast umræður um ökumenn og leiðsögumenn.
Allt logar eftir falleinkunn á veitingastað á Vesturlandi: „Yfirgengileg frekja og yfirgangur!“