Ofbeldisfull mótmæli brutust út í Belfast, höfuðborg Norður-Írlands, í gærkvöldi þegar hundruð grímuklæddra mótmælenda söfnuðust saman á götum borgarinnar.
Þetta gerðist í kjölfar hrottalegrar hnífaárásar í fyrrakvöld þar sem súdanskur karlmaður réðst að öðrum og reyndi að afhöfða hann úti á götu. Kveikt var í húsum, bílum, strætisvagni og verslunum og urðu átök milli mótmælenda og lögreglu.
Fórnarlamb hnífaárásarinnar í fyrrakvöld, Stephen Ogilvie, liggur enn á sjúkrahúsi og er ástand hans metið alvarlegt. Samkvæmt lögreglu er hinn grunaði hælisleitandi sem hafði fengið ótímabundið dvalarleyfi í Bretlandi.
Í kjölfar handtökunnar söfnuðust hundruð manna saman í Belfast þar sem mótmælin urðu fljótt ofbeldisfull. Kveikt var í íbúðarhúsum og neyddust sumir íbúar til að flýja heimili sín.
Myndskeið frá vettvangi sýna börn og ungbörn borin út úr húsum á meðan eldar geisuðu í nærliggjandi byggingum.
Presturinn Jack McKee sagði við BBC að fólk hefði verið hrakið frá heimilum sínum „vegna þess að það er svart á hörund“.
Fréttir herma að hópar mótmælenda hafi gengið um ákveðin hverfi, brotið upp dyr og rúður og hrópað að þeir væru að „reka útlendingana út“.

Í frétt Daily Mail segir að einnig hafi verið settar upp óformlegar eftirlitsstöðvar þar sem bílar voru stöðvaðir og farþegar kannaðir. Múrsteinum var kastað í lögreglubíla og var kveikt í minnst einum lögreglubíl. Slökkvilið Norður-Írlands sinnti alls 62 útköllum vegna eldsvoða og annarra atvika sem tengdust óeirðunum.
Forsætisráðherra Norður-Írlands, Michelle O’Neill, fordæmdi atburðina harðlega og sagði að um hrein skrílslæti væri að ræða. Varaði hún við því að fólk væri að nýta hnífstunguna sem afsökun til að ráðast á saklausa einstaklinga.
Í frétt Daily Mail kemur fram að atvikið hafi vakið harðar pólitískar deilur um landamæraeftirlit á milli Írlands og Bretlands.
Í ljós hefur komið að hinn grunaði ferðaðist frá Súdan til Frakklands og þaðan til Dublin áður en hann fór með rútu yfir til Norður-Írlands árið 2023. Vegna fyrirkomulags sem kallast Common Travel Area (CTA) eru almennt engar vegabréfaathuganir á ferðalögum milli Írlands og Norður-Írlands.
Lögregla hefur þó tekið fram að ekkert bendi til þess að hnífaárásin tengist hryðjuverkastarfsemi.