Á vef Stjórnarráðsins segir að niðurstaða nefndarinnar sé sú að öll fjögur sem sóttu um, Aðalsteinn E. Jónasson landsréttardómari, Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari, Eiríkur Jónsson landsréttardómari og Eyvindur G. Gunnarsson landsréttardómari, séu jafnsett til að hljóta skipun í embætti dómara við Hæstarétt Íslands.
Þar kemur einnig fram að þau sem dómnefndina hafi skipað séu Ása Ólafsdóttir formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.
Sláandi tölur
Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 27. mars og umsóknarfrestur var til 13. apríl en staðan losnaði og var auglýst vegna starfsloka Ólafs Barkar Þorvaldssonar, sem hefur verið skipaður dómari við réttinn frá árinu 2003 en hann var sá dómari Hæstaréttar sem hafði starfað lengst við réttinn.
„Þetta var komið gott,“ sagði Ólafur Börkur í samtali við Vísi í byrjun júní þessa árs. Hann sagðist hafa slegið því upp hversu mörg mál hann hafi dæmt og sér hafi brugðið.
„Allt of mikið. Ég hef nú trú á því að ég muni nýtast eitthvað áfram á sviði lögfræðinnar. Ég er að kenna við Háskólann í Reykjavík og svo kemur bara í ljós hvað ég mun gera meira af því og hvernig.“