Slökkviliðsmenn af öllum stöðvum slökkviliðisins á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir út um klukkan tíu í morgun vegna elds á trésmíðaverkstæði við Gylfaflöt í Grafarvogi. Einn var fluttur til aðhlynningar.
Að sögn Ásdísar Gíslason, upplýsingafulltrúa slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, er eldurinn í litlu bakhúsi. Slökkviliðsmenn hafa rifið hluta þess til að komast að eldinum. Þeir voru að ná tökum á eldinum skömmu fyrir klukkan 11.
Ásdís segir að viðbragð sé alltaf mikið þegar eldur kviknar á vinnustöðum á borð við trésmíðaverkstæði. Gera megi ráð fyrir að þar sé mikill eldsmatur. Hún segir erfitt að meta tjónið á þessari stundu.
Fréttin verður uppfærð.