Guðlaugur Arason, rithöfundur og listamaður, var að opna sýningu í Gallerý Listaseli í nýja miðbænum á Selfossi þar sem hann sýnir mjög óvenjuleg verk – örsmáar álfabækur. Við opnunina spiluðu þeir Jón Rafnsson á kontrabassa og Björn Thoroddsen á gítar.
„Þegar ég byrjaði á þessum bókum þá var ég að skrifa skáldsögu sem fjallaði um álfa og menn. Ég tók mér frí frá því vegna þess að ég þurfti að flytja bókasafnið mitt. Ég var að flytja á milli landa og flytja fjögur þúsund bindi af bókum og ég sagði þá við sjálfan mig: Gulli, er ekki hægt að minnka bókasafnið þitt niður einhvern veginn þannig að þú getir farið með það í flugvélinni án þess að borga yfirvigt?” segir Guðlaugur.
En hvernig fer Guðlaugur að því að hafa bækurnar svona smáar?
„Ég tek hverja bók og skanna hana þrisvar sinnum, það er sem sagt fram, bak og kjöl, og set svo í tölvuna mína. Svo minnka ég þetta niður þar til ég fæ stærðina 1 á móti 12 miðað við orginalinn. Svo prenta ég þetta út, klippi þetta niður og svo lími ég kápuna á balsatré, sem ég saga til. Það er sem sagt innmaturinn í bókinni, það er balsatré,” segir Guðlaugur.
Guðlaugur, sem býr í Danmörku, er allsæll þar og vinnur þar sín listaverk. Sýningin á Selfossi verður opin út ágústmánuð.
„Þá pakka ég niður og fer til Danmerkur aftur,” segir Guðlaugur kátur og hress.