Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni

Grenivík
Mynd: Cinquantecinq/Wikipedia
Starfsmaður hjúkrunarheimilisins Grenilundar á Grenivík hefur verið ákærður fyrir brot í opinberu starfi og fjársvik gegn heimilismanni. Ákærði er kona á þrítugsaldri en brotaþoli eldri maður en RÚV greindi fyrst frá málinu.
Samkvæmt ákæru er konunni gefið að sök að hafa svikið samtals 780 þúsund krónur út úr manninum á tímabilinu frá 6. maí til 21. september 2024.
Konan hafði aðgang að kreditkorti mannsins og PIN-númeri þess. Hún er sökuð um að hafa án heimildar tekið reiðufé út af kortinu í hraðbönkum alls fimmtán sinnum. Úttektirnar námu á bilinu 30 til 80 þúsund krónum í hvert sinn.
Saksóknari á Norðurlandi eystra höfðar málið og krefst refsingar og greiðslu sakarkostnaðar.