Hannes var í lok síðasta mánaðar dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar og greiðslu 2,5 milljóna króna í miskabætur. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði hann í gæsluvarðhald til 4. desember en Hannes skaut úrskurðinum til Landsréttar.
Hannes krafðist þess að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi. Landsréttur féllst ekki á það en féllst á varakröfu hans um að stytta gæsluvarðhaldstímann til 26. júní.
Í úrskurði Landsréttar frá 5. júní kemur einnig fram að Hannes hyggist ekki áfrýja dóminum . Verjandi hans greindi frá því í greinargerð. Hannes hafði ekki tekið afstöðu til áfrýjunar þegar gæsluvarðhald yfir honum var framlengt í héraði.
Hannes hefur sætt gæsluvarðhaldi frá því í ágúst í fyrra. Hannes var upphaflega ákærður í nóvember síðastliðnum fyrir nauðgun með því að hafa tvisvar sinnum á árinu 2025 á leikskólanum haft önnur kynferðismök en samræði við stúlku. Hann hafi misnotaði freklega yfirburðarstöðu sína gagnvart stúlkunni, brugðist trausti hennar og trúnaði sem starfsmaður leikskólans og í annað skiptið jafnframt notfært sér að þannig var ástatt um stúlkuna að hún gat ekki spornað við verknaðnum sökum svefndrunga.